12. spora kerfi súkkulaði fíkilsins

12 spora kerfið hefur hjálpað mörgum.  Útgáfa Smugu af 12 spora kerfi við súkkulaðifíkn myndi t.d, líta svona út:

 1.                  Ég mun viðurkenna vanmátt minn gagnvart súkkulaði

2.                  Ég mun taka Nigellu úr Guðatölu og líta á hana sem manneskju

3.                  Ég mun taka burt allar kökubækur úr svefnherberginu

4.                  Ég mun aðeins lesa kökublað Gestgjafans einu sinni á dag

5.                  Ég mun hætta að baka við öll tækifæri, þ.m.t. á þjóðhátíðardag Normanna, Svía, Belga, Dana osfrv.

6.                  Ég mun viðurkenna að það er ekki verið að tala beint til mín þegar birtist súkkulaðiauglýsing í sjónvarpinu.

 7.                  Ég mun hætta að enda mínar bænir með að eilífu, Snickers.

8.                  Ég mun ekki skíra börnin mín Lindu, Nóa eða Mónu.

9.                  Ég mun aldrei framar syngja Þú ert súkkulaði, súkkulaði, súkkulaði hæna

10.              Ég mun viðurkenna að Sælgætisland er ekki til og Glámur og Skrámur séu óæskilegur félagsskapur.

11.              Ég mun viðurkenna að súkkulaði er ekki eitt af frumefnum og við getum lifað án þess.     

12.        Ég mun flytja öðrum súkkulaði fíklum þennan boðskap án  þess að slefa...  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband