Reyklaus dagur númer eitt

10054567Ég hætti að reykja í gær klukkan fimm.

Fékk ,,dillupillur" hjá lækninum sem ég er búin að taka í viku (á s.s. að taka viku fyrir og viku eftir að maður hættir)....ég er ennþá að bíða eftir að taugaboðin um að mig langi ekki í dillu skili sér!

Nú, og af því ég treysti ekki fullkomnlega á að dillupillurnar virki fékk ég mér líka tyggjó, bæði myntu og ávaxta til að gera breytt til, og af því ég var ekki viss um að það myndi duga þá fékk ég mér líka svona dillustauta (hálfgerðar gerfisígarettur). þetta eru lítil plasthylki sem maður setur svona fyllingar í og svo sýgur maður. Og af því ég var viss um að ég yrði að hafa eitthvað að gera (fyrir utan að éta dillupillurnar, tyggjóið og sjúga stautinn) þá keypti ég 5 dokkur af garni (þó ég kunni eiginlega hvorki að prjóna né hekla) og er staðráðin í því að hekla teppi.

kveðja

reyklaus dagur númer eitt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Gangi þér vel með reykteppið...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 14.12.2007 kl. 21:05

2 identicon

Æ, dúllan!  Gangi þér bara vel, þú getur þetta alveg  ;)

eva ólafs~ 16.12.2007 kl. 18:24

3 identicon

Sko ég er alveg sammála honum Páli, nikotín tygjgó viðheldur bara nikotín þörfinni og hvað þá ef þú átt allar gerðir til að vera alltaf að skipta...  Ef þú ert að losa þig við dillurnar á annað borð skaltu bara gera það með meiri stæl og hætta þessu gervi drasli öllu og leyfðu apotekunum bara að eiga tyggjóið og stútinn og allt þetta drasl og fáðu þér bara tópas eða e-ð eins og pabbiSvo skaltu fara í meðferð eða dáleiðslu eða e-ð yfir apotek fíkninni þinni því ég veit um fáa sem eru jafn duglegir að versla í apotekum og þú og koma með heilu pokana þaðan út, múhahaha

Gangi þér nú samt vel með þetta elsku frænka og til hamingju með að vera hætt að reykja

Hugrún frænka 16.12.2007 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband